Tungutæknisetur
(Icelandic Center for Language Technology, ICLT)
var stofnað 15. júní 2005 með
undirritun samstarfssamnings Málvísindastofnunar
Háskóla
Íslands, tækni-
og verkfræðideildar Háskólans
í Reykjavík
og Orðabókar
Háskólans
(nú orðfræðisviðs
Stofnunar
Árna Magnússonar í
íslenskum
fræðum).
Setrinu er ætlað að vera vettvangur fyrir
samstarf þessara aðila
um rannsóknir, þróun og kennslu
í tungutækni. Aðrar
háskólastofnanir og
fyrirtæki sem stunda rannsóknir,
þróun eða kennslu í
tungutækni geta óskað
eftir aðild að setrinu.
Hlutverk setursins er að vera
miðstöð íslenskrar
tungutækni, og því hlutverki gegnir
það m.a. með því
að:
- vera
upplýsingaveita um íslenska tungutækni
og reka vefsetur í
því skyni
- stuðla
að samstarfi
háskóla,
stofnana og fyrirtækja um
tungutækniverkefni
- skipuleggja
og samhæfa háskólakennslu á
sviði tungutækni
- taka
þátt í norrænu,
evrópsku og alþjóðlegu
samstarfi á sviði
tungutækni
- eiga
frumkvæði að og taka
þátt í rannsóknaverkefnum
á sviði
tungutækni
- eiga
frumkvæði að og taka
þátt í hagnýtum verkefnum
á sviði
tungutækni
- halda utan
um ýmiss konar hráefni og afurðir
á sviði tungutækni
- halda
árlega ráðstefnu með
þátttöku fræðimanna,
fyrirtækja og
almennings
- beita
sér fyrir eflingu íslenskrar tungutækni
á öllum sviðum
Setrinu
er einkum ætlað að vera vettvangur fyrir
samstarf einstaklinga sem starfa á
sviði tungutækni hjá
samstarfsaðilunum, og jafnframt bakland þeirra vegna
þátttöku í ýmiss
konar innlendu og erlendu samstarfi.
Yfir
setrinu er stjórn sem skipuð er einum
fulltrúa frá hverjum samstarfsaðila.
Stjórnin þarf að samþykkja
þau verkefni sem í er ráðist
í nafni setursins.
Einstakir samstarfsaðilar hafa áfram fullt frelsi
til að standa að og taka þátt
í verkefnum án samþykkis
stjórnar, en þau verkefni eru
þá í þeirra nafni.
Stjórnin
getur tilnefnt forstöðumann úr
hópi kennara og fræðimanna í
tungutækni hjá
samstarfsaðilunum. Hlutverk forstöðumanns er
að halda utan um sameiginlega
þætti í rekstri setursins og beita
sér fyrir samstarfi og samhæfingu verkefna.
Samstarfsaðilarnir
sjá setrinu fyrir húsnæði og
aðstöðu samkvæmt nánara
samkomulagi. Meginreglan er sú að hver aðili
sér um sig
í því efni og ekki er stefnt að
einni sameiginlegri miðstöð fyrir alla
aðila
setursins.
Stjórn setursins skipa:
Tungutæknisetur
á aðild að CLARIN
og ELRA og er styrktarfélagi í NEALT.
Á
næstu síðu er gerð grein fyrir
starfsemi Tungutækniseturs.
|