17.
apríl 2002
VERKEFNI
STYRKT AF TUNGUTÆKNISJÓÐI Í
APRÍL 2002
Beygingakerfi
-
Málfræðigreinikerfi -
Málfræðipúki
Umsækjandi:
Friðrik Skúlason ehf
Lýsing
á verkefni:
Sótt er um styrk til að þróa:
1) Beygingagreinikerfi sem geti skilað upplýsingum
um beygingu íslenskra orða.
2) Málfræðigreinikerfi sem greinir
setningar vélrænt og segir til um byggingu
setningar og eiginleika einstakra hluta hennar.
3) Málfræðipúka sem
leiðréttir íslenskar setningar
á grundvelli beygingar- og setningafræði.
Málfræðipúkinn nýtir
sér því kerfi 1 og 2 og er
notendaforrit.
Verkefnin
verða styrkt um 10
milljónir
króna.
Beygingarlýsing
íslensks nútímamáls
Umsækjendur: Orðabók
Háskólans
og Edda
hf. – miðlun og útgáfa
Lýsing
á verkefni:
Markmið verkefnisins er að koma upp
beygingarlýsingu íslensks máls
á tölvutæku formi. Að verkefninu
loknu verður til tölvutæk
beygingarlýsing sem yrði aðgengileg til nota
í önnur tungutækniverkefni.
Verkefnið
verður styrkt um 10
milljónir
króna.
Reglusafn
fyrir markara
Umsækjendur: Orðabók
Háskólans
og Málgreiningarhópurinn
Lýsing
á verkefni:
Markmið verkefnisins er að búa til reglusafn
fyrir markara sem geti merkt orð í
íslenskum texta á kerfisbundinn hátt
(orðflokk, beygingu o. s.frv.). Slíkt er forsenda
fyrir uppbyggingu ýmiss konar málgrunna.
Verkefnið
verður styrkt um 6
milljónir
króna.
Talkennsl
og texti í tal
Umsækjandi: Nýherji
hf
Lýsing
á verkefni:
Markmið verkefnisins er að hefja
þróun íslenskrar
útgáfu af WebSphere Voice Server frá
IBM þannig að hægt verði að
nota þann hugbúnað til að
bjóða upp á talviðmót
á íslensku. Í fyrsta áfanga
verður um að ræða
stakorðaskilning á takmörkuðu
orðamengi og vörpun texta í tal, auk
þess að áætlanir er
lúta að því að
íslenska IBM raddtæknina til fulls verða
þróaðar.
Verkefnið
verður styrkt um 5
milljónir
króna.
Hagnýt
nýting tungutækni í
símtölvunarlausnum
Umsækjandi: Grunnur-Gagnalausnir
ehf
Lýsing
á verkefni:
Markmið
verkefnisins er að
hagnýta
tungutæknilausnir, sem þróaðar
eru annars staðar, með því
að tengja þær við
símtölvunarlausnir fyrirtækisins.
Fyrirtækið er áhugasamast um taleiningar,
sem hægt er að nýta beint við
lausnir sem fyrirtækið hefur
þróað, svo sem Tímon,
Boða og Uppara.
Verkefnið
verður styrkt um 2,5
milljónir
króna.
Íslensk
textasöfn
Umsækjandi: Landsbókasafn
Íslands – Háskólabókasafn
Lýsing
á verkefni:
Markmið umsækjanda er að framleiða og
gera aðgengileg textasöfn til afnota fyrir alla sem
vinna að verkefnum á sviði
tungutækni. Í verkefninu felst tvennt. Annars
vegar að koma upp hugbúnaði til að
leiðrétta texta frá ýmsum
tímum og hins vegar að hanna
aðferðir til að gera textaleit
nákvæmari og markvissari.
Verkefnið
verður styrkt um 1,6
milljónir
króna.
Endurbætt
tillögugerðarforrit Púkans
Umsækjandi: Friðrik
Skúlason ehf
Lýsing
á verkefni:
Markmið verkefnisins er að fækka
bulltillögum sem ritvilluvörn Púkans kemur
með þegar hann er að reyna að finna
rétt orð fyrir rangt stafsett orð.
Bullorð eru þau orð sem Púkinn
býr sjálfur til úr samsetningu
orða í orðasafninu og eru jafnframt
lík upphaflega orðinu útlitslega. Einnig
á að kenna Púkanum að
þekkja algengar villur í stafsetningu.
Verkefnið
verður styrkt um 1
milljón
króna.
Endurbætt
orðskiptiforrit Púkans
Umsækjandi: Friðrik
Skúlason ehf
Lýsing
á verkefni:
Orðskiptiforrit Púkans getur skipt löngum
orðum á milli lína. Sótt er um
styrk til að endurbæta
orðskiptiforritið þannig að
það geri færri villur í
orðskiptingu. Púkinn getur t.d. núna ekki
skipt þeim orðum sem eru geymd í heilu
lagi í orðasafninu. Sem dæmi um
aðrar villur er þegar Púkinn kemur
með tillögur að tveimur mögulegum
skiptingum og önnur er mjög langsótt.
Verkefnið
verður styrkt um 0,5
milljónir
króna.