|
25.5. 2003
Íslenskur
talgreinir í uppsiglingu:
Hjal vill heyra í sem flestum Íslendingum
Verkefnið
Hjal, sem styrkt er af Tungutæknisjóði
menntamálaráðuneytisins, er í
fullum gangi. Hjal er samstarfsverkefni Símans,
Nýherja, Háskóla
Íslands, Grus gagnalausna og Hex
hugbúnaðar. Hjal snýst um söfnun
upplýsinga til gerðar íslensks talgreinis
og nú er leitað að
sjálfboðaliðum sem eru
reiðubúnir að aðstoða
við verkefnið. Safna þarf upptökum
með hljóðdæmum frá eins
breiðum hópi Íslendinga og
mögulegt er. Þátttakendur eru
beðnir um að lesa setningar og setningabrot sem
innihalda flest hljóðmynstur íslensku.
Þessum verkhluta lýkur í byrjun
júlí.
Viltu
taka þátt?
Aðstandendur
Hjals hvetja þá sem vilja leggja
málefninu lið til að skrá sig HÉR.
Eftir skráningu fá
sjálfboðaliðar í hendur texta sem
lesa þarf inn, ásamt upplýsingum um
gjaldfrjálst símanúmer sem hringja
skal í og lesa textann.
Hljóðdæmin sem þannig er
safnað verða síðan notuð til
þjálfunar talgreinis fyrir íslensku.
Þátttakendur lenda í lukkupotti og
verða dregin út nöfn tíu
heppinna vinningshafa. Verðlaunin eru fjórir
GSM-símar af gerðinni Sony
Ericsson P610 og sex
GSM-símar af gerðinni Sony
Ericsson T310.
|