13.11.
2001
Íslenskt
þekkingarsetur í
tungutækni
Stjórn
norrænu
tungutækniáætlunarinnar (Nordisk
sprogteknologisk
forskningsprogram) hefur úthlutað styrkjum til
að koma
upp þekkingarsetrum (dokumentationscenter) í
tungutækni í norrænu ríkjunum
fimm;
Íslandi, Danmörku, Noregi,
Svíþjóð
og Finnlandi. Styrkur til hvers lands er að
upphæð 110
þúsund norskar krónur á
ári
(u.þ.b. 1,2 milljónir íslenskra
króna).
Styrkirnir eru veittir til eins árs í senn, en
gert er
ráð fyrir að sama upphæð
verði veitt
í fjögur ár alls að
því tilskildu
að starf setranna skili viðunandi árangri.
Verkefni
þekkingarsetranna er einkum að safna saman
og
miðla upplýsingum um hvaðeina sem
viðkemur
tungutækni í hverju landi fyrir sig.
Þannig geta
þeir sem eru að vinna á sviði
tungutækni
sótt þangað upplýsingar um
hvaða efni
sé til og hvar það sé
að finna. Einnig er
gert ráð fyrir því að
setrin
þjóni að einhverju leyti sem gagnabankar,
þannig
að menn geti ekki einungis sótt
þangað
upplýsingar um gögn, heldur í sumum
tilvikum
gögnin sjálf. Það er
þó ljóst
að staða tungutækni á
Norðurlöndum er
mjög mismunandi, og því verða
verkefni setranna
ekki alveg þau sömu í byrjun.
Íslenska
þekkingarsetrið verður
rekið á
vegum Orðabókar Háskólans,
í
húsnæði hennar að Neshaga 16.
Forsvarsmaður
þess er Eiríkur Rögnvaldsson,
prófessor, en
Aðalsteinn Eyþórsson B.A.
starfsmaður
Orðabókarinnar, mun sjá um daglegan
rekstur.
Starfsemi setursins hófst í byrjun
október.
Starfsemin mun að sjálfsögðu
mótast
smátt og smátt, en gert er ráð
fyrir að
verkefni setursins fyrsta árið verða einkum
þessi:
- Að
safna saman
upplýsingum um forrit, textasöfn,
rannsóknarniðurstöður,
rannsóknarverkefni,
iðnþróunarverkefni o.s.frv. innan
íslenskrar
tungutækni, og einnig upplýsingum um stofnanir og
fyrirtæki sem vinna að þess
háttar verkum.
- Að
gera þessar
upplýsingar aðgengilegar í gagnagrunni
sem hægt
er að leita í á netinu, ásamt
því
að svara spurningum og veita upplýsingar
í
síma og tölvupósti.
- Að
kynna og vekja
áhuga fólks á íslenskri
tungutækni
með því að setja efni á
netið, skrifa
greinar í blöð og tímarit, taka
þátt í ráðstefnum og
málstofum
innanlands og erlendis, o.s.frv.
- Að
koma á tengslum
við önnur norræn þekkingarsetur og
kynna
norræna tungutækni á Íslandi.
Stjórn
norrænu
tungutækniáætlunarinnar hefur einnig
veitt 300
þúsund norskar krónur á
ári í
fjögur ár til að koma á
fót samstarfsneti
norrænu þekkingarsetranna (NorDokNet).
Íslenska
setrið tekur að sjálfsögðu
þátt
í því samstarfi. Fyrsti fundur netsins
var haldinn
í Kaupmannahöfn í byrjun
október. Þar
var rætt ítarlega um viðfangsefni setranna
og settir
á stofn vinnuhópar til að fjalla um
einstök
verkefni á næstu mánuðum.