9.4. 2002
Norrænt
námskeið um talmálsbanka í
Gautaborg
Norrænt
rannsóknanámskeið um
talmálsbanka, "Using
Spoken Language Corpora"
verður
haldið 19.-24. ágúst í sumar
í
Gautaborg. Þetta er þverfaglegt
námskeið
þar sem fjallað verður um
aðferðir við
söfnun, greiningu og úrvinnslu
talmálsgagna
frá sjónarhóli
hljóðfræði,
málvísinda og tungutækni. Einnig
verða kynntir
ýmsir norrænir talmálsbankar,
þ. á m.
íslenski bankinn ÍS-TAL.
Námskeiðið er á vegum
samstarfsnetsins Nordtalk,
sem styrkt er af norrænu
tungutækniáætluninni,
og er ætlað framhaldsnemum og
fræðimönnum.
Þátttakendur fá greiddar ferðir
og uppihald.
Umsóknarfrestur
er til 15. apríl, en allar
nánari
upplýsingar má finna á vefnum: http://www.ling.gu.se/projekt/nordtalk/
Eiríkur
Rögnvaldsson prófessor veitir
einnig
nánari upplýsingar, eirikur@hi.is,
sími 525-4403.