10.4. 2002
Enn
er hægt að
sækja um meistaranám í
tungutækni við
HÍ
Alls
hafa borist 10 umsóknir um að hefja
meistaranám
í tungutækni við
Háskóla Íslands
nú í haust. Umsækjendur hafa
fjölbreyttan
bakgrunn, en flestir eiga að baki nám og/eða
störf
á báðum þeim sviðum sem
samtvinnast
í náminu, þ.e.
málfræði og
tölvutækni.
Þótt
formlegur umsóknarfrestur um
námið
sé liðinn kemur enn til greina að taka
við fleiri
nemendum. Þeir sem kynnu að hafa hug á
að
sækja um geta haft samband við
umsjónarmann
námsins, Eirík Rögnvaldsson
prófessor,
netfang: eirikur@hi.is,
sími: 525-4403. Hann veitir einnig upplýsingar um
námið og fyrirkomulag þess.