| 12.9, 2002
Málþing
um
tungutækni og tungumálarannsóknir
Nú
stendur yfir málþing um
tungutækni og
notkun tölva við
tungumálarannsóknir,
þýðingar og tungumálakennslu
á vegum
Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum
tungumálum við Háskóla
Íslands.
Á málþinginu er m.a. fjallað um
þýðingaminni, notkun gagnagrunna
(talað og
ritað mál) í
tungumálarannsóknum og
tungumálakennslu og um nýbreytni í
tungumálakennslu með notkun nýrra
miðla.
Erlendir
sérfræðingar flytja erindi
á
málþinginu, m.a. Jens Allwood,
prófessor við
Gautaborgarháskóla, Kris Van de Poel,
prófessor og
forstöðumaður fyrir Centrum voor Taal en
Spraak í
Antwerpen og Anju Saxena, dósent við
Uppsalaháskóla. Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
fékk
styrk frá NorFa til að halda
þingið.
Málþingið fer fram 12.-14. september
í
Háskóla Íslands og er
fullbókað.
|