 |
FRÉTT
|
|
23.10.
2002
Vefpúki
fyrir
íslenskar vefsíður
Friðrik
Skúlason
ehf. hefur í samvinnu við
Nýsköpunarsjóð
námsmanna hannað
Vefpúka sem gerir almenningi kleift að
láta lesa yfir
íslenskar vefsíður og texta á
Netinu.
Vefpúkinn er fyrsta kerfi sinnar tegundar fyrir
íslensku.
Hann getur annars vegar lesið yfir vefsíður
og hins
vegar texta sem notandi slær inn í textabox
á
síðunni. Kerfið skilar
síðunni/textanum til
baka þar sem búið er að merkja
þau orð
sem talin eru rangt stafsett og við hvert rangt orð
birtist
listi með tillögum að
leiðréttingum.
Vefpúki er byggður á sama kerfi og
ritvilluvörnin Púki 2002 sem
fyrirtækið
Friðrik Skúlason ehf. á og yfirfer texta
því á sama hátt og hann;
eitt og eitt
orð er skoðað í senn og
athugað hvort
það sé rétt stafsett.
Birna
Íris
Jónsdóttir, sem er 3ja árs nemi
við
tölvunarfræðiskor
Háskóla Íslands,
hannaði og skrifaði forritið sem nær
í
html-síðurnar og birtir þær svo
yfirlesnar
með tillöguboxunum. Aðalleiðbeinandi
hennar í
verkefninu var Friðrik Skúlason.
Vefpúkinn er
öllum aðgengilegur á http://puki.is
án endurgjalds. |
|
|