18.1. 2003
Menntamálaráðuneytið
lýsir eftir
áhugasömum um þróun
talmálsgrunna
Menntamálaráðuneytið
lýsir eftir þeim sem áhuga hafa
á að
þróa talmálsgrunna með
það fyrir
augum að nýta þá í
tungutæknilausnir. Þetta kemur fram í
auglýsingu í Morgunblaðinu 19.
janúar.
Við
úthlutun styrkja til
tungutækniverkefna í
apríl á síðasta ári
var
ákveðið að verja fé til
þróunar
talmálsgrunna sem byggja til dæmis á
orðgreiningu og talgervlum og er nú verið
að
auglýsa eftir áhugasömum um að
vinna
það verk. Þetta verkefni flokkast sem
stuðningur
við þróun tungutæknieininga en
þróun þeirra er
ráðuneytið
tilbúið að kosta að nokkru
eða öllu leyti.
Skilyrði
fyrir framlagi ráðuneytisins er
að allar
heimildir til að breyta, fjölfalda og framselja
afurðina
yfirfærist til ráðuneytisins.
Styrkþega er
heimilt að vinna áfram með afurðina,
breyta henni,
bæta við hana og nýta hana í
önnur
verkefni.
Umsóknir
skulu berast: Verkefnisstjórn um
tungutækni,
Menntamálaráðuneyti,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
í
síðasta lagi fyrir 10. febrúar 2003.
Nánari
upplýsingar er að fá í
menntamálaráðuneytinu í
síma 545 9500.
|