|
5.11.2004
Ráðstefna
á vegum verkefnisstjórnar í
tungutækni
Tungutækniáætlun
menntamálaráðuneytisins,
sem hleypt var
af stokkunum
haustið 2001, lýkur formlega nú um
áramótin, enda þótt sum
verkefni sem
áætlunin hefur styrkt séu enn
í fullum
gangi. Á þessum tímamótum
efnir verkefnisstjórn
í tungutækni
til
ráðstefnu í Salnum í
Kópavogi
þriðjudaginn 30. nóvember nk. kl. 13.
Þar
verða kynnt ýmis verkefni sem
áætlunin hefur
styrkt. Dagskrá ráðstefnunnar
verður nánar
kynnt hér síðar.
|