14.12.2004
Tungutækni.is
uppfært
Vefsetrið
www.tungutaekni.is
hefur nú verið endurnýjað
frá grunni. Það hefur
frá upphafi, sumarið 2001, verið
rekið á vegum verkefnisstjórnar
í tungutækni,
en skipunartíma hennar lýkur nú um
áramót. Því hefur
orðið að ráði að
sameina setrið þekkingarsetri
um tungutækni sem Orðabók
Háskólans
setti upp á vegum norrænu
tungutækniáætlunarinnar.
Orðabókin mun því
sjá um reksturinn framvegis, en norræna
tungutækniáætlunin greiðir
kostnaðinn fyrst um sinn.
Í
tengslum við þessar breytingar hefur skipulag
setursins verið lagað að núverandi
framsetningu norrænna systursetra
sem starfa saman í NorDokNet.
Allar upplýsingar hafa verið flokkaðar og
þeim gefin sérstök lykilorð
í
samræmi við viðurkennda lykilorðaskrá
sem notuð er á upplýsingasetrinu Language
Technology World. Setrið
hefur nú verið tengt sérstakri
leitarvél, SiteSeeker,
sem leitar á öllum norrænu setrunum
í einu. Flokkun upplýsinga og
notkun lykilorða gefur kost á mjög
markvissri leit að hvers kyns
upplýsingum um tungutækni á
Norðurlöndum. Í framhaldi af heimsókn
norræns tungutæknifólks til
Eystrasaltslandanna fyrr
í haust eru einnig uppi áform um að
tengja upplýsingar um tungutækni þeirra
landa inn á leitarvélina.
|