 |
FRÉTT

|
18.12.2006
Fyrirlestur
um talgreiningu 3. janúar
Annar
fyrirlestur Tungutækniseturs á þessum
vetri verður haldinn í stofu 201
í Háskólanum í
Reykjavík miðvikudaginn 3. janúar 2007
og hefst kl. 12:00. Fyrirlesari er Arnar Þór
Jensson rafmagns- og tölvuverkfræðingur og
nefnist
erindi hans Talgreinikerfi
fyrir íslensku.
Í
fyrirlestrinum verður fjallað um gerð
íslensks talgreinikerfis sem
fyrirlesari bjó til og rannsóknir sem
gerðar hafa verið á kerfinu.
Sérstaklega verður fjallað um
það hvernig hægt er að
smíða
talgreinikerfi þegar takmarkaðar
upplýsingar liggja fyrir til þjálfunar.
Arnar
Þór Jensson útskrifaðist
með BS gráðu í rafmagns- og
tölvuverkfræði frá
Háskóla Íslands
árið 2001. Hann lauk meistaraprófi
í
rafmagns- og tölvuverkfræði frá
Tokyo Institute of Technology árið 2006
þar sem meistaraprófsverkefni hans sneri
að talgreiningu og
talgreinikerfum. Hann stundar nú doktorsnám
í sömu fræðum við Tokyo
Institute of Technology. Arnar hefur meðal annars einbeitt
sér að gerð
talgreinikerfis fyrir íslensku og gerði
slíkt kerfi, styrkt af
Nýsköpunarsjóði
námsmanna, aðgengilegt á netinu
árið 2004. |
|
|