13.2.2007
Meistaranám
í máltækni (tungutækni) hefst
væntanlega í haust
Stefnt
er að
því að frá og með
hausti 2007 bjóði Háskóli
Íslands og Háskólinn
í Reykjavík upp á
sameiginlegt meistaranám í
máltækni (tungutækni).
Námið er jafnframt í samvinnu við
Nordic
Graduate School of Language Technology (NGSLT).
Markmið
námsins er
tvíþætt. Annars vegar
að búa nemendur undir doktorsnám
á
sviði máltækni og hins vegar að
útskrifa nemendur sem hafa þekkingu til að
stjórna verkefnum og útfæra lausnir
á þessu sviði. Upplýsingar um námið
er að finna hér,
en þeim sem hafa áhuga
á því er bent á að
hafa samband
við Eirík
Rögnvaldsson
eða Hrafn
Loftsson.
|