21.2.2007
Fyrirlestur
um sjálfvirka greiningu merkingarvensla 6. mars
Næsti
fyrirlestur Tungutækniseturs verður haldinn
í stofu 103 í Lögbergi
þriðjudaginn 6. mars og hefst kl. 12:00. Fyrirlesari
er Anna Björk Nikulásdóttir og nefnist
erindi hennar Sjálfvirk
greining merkingarvensla úr Íslenskri
orðabók.
Tenging
flettna/uppflettiorða við merkingarlega skyld
orð gæti bætt til muna uppsetningu
og
leitarmöguleika Íslenskrar
orðabókar á
rafrænu formi. Mögulegt væri t.d.
að benda notanda á yfirheiti, samheiti eða
önnur tengd orð flettunnar sem hann hefur
slegið inn. Skýringartextar
orðabóka fylgja yfirleitt ákveðnu
formi og hægt er að ganga út
frá því að þeir
innihaldi merkingarlegar upplýsingar um tilheyrandi flettu.
Í rannsókninni sem
fjallað verður um voru skýringartextar
nafnorðaflettna í Íslenskri
orðabók
markaðir með
málfræðimarkara og
því næst orðflokkamynstur
skýringartextanna
könnuð. Með hjálp þessara
gagna tókst að þróa reglur sem
gera tölvuforriti
kleift að finna það eða þau
orð í hverjum skýringartexta sem mynda
merkingarvensl með viðkomandi flettu.
Anna
B. Nikulásdóttir
lauk
stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskóla Vesturlands árið
1993 og blásarakennaraprófi
frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1996. Á
árunum 1997–2000 stundaði hún
nám í tónvísindum,
þýsku og málvísindum
við háskólann í Mainz
í Þýskalandi, og
frá 2000 hefur hún verið við
nám í tungutækni (computational
linguistics), þýsku og
kennslufræði þýsku fyrir
útlendinga við háskólann
í Heidelberg. Í sumar lýkur
hún
M.A.-prófi í tungutækni og
kennslufræði þýsku fyrir
útlendinga. Auk
þess að starfa
sem tónlistarkennari starfaði hún
á námsárunum við European Media
Laboratory í
Heidelberg og við Fraunhofer’s Integrated
Publication and
Information Systems Institute (IPSI)
í
Darmstadt í Þýskalandi.
|