10.4.2007
Fyrirlestur
um gervigreind og fjölhátta samskipti 17.
apríl
Næsti fyrirlestur
Tungutækniseturs verður haldinn í
stofu 201 í Háskólanum í
Reykjavík
við Ofanleiti þriðjudaginn 17. apríl og hefst kl. 12:00. Fyrirlesari er Kristinn R.
Þórisson dósent og nefnist erindi
hans Achieving
Dynamic Turntaking in Multimodal Humanoids (Kvik
lotuskipti hjá fjölhátta manngervingum).
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
Gagnvirkni milli
fólks í samskiptum augliti til auglitis myndar
flókið mynstur
hreyfinga og merkingar. Vegna þess hversu margbrotin
þessi gagnvirkni er verður
heildarkenning um hana að vera í formi
keyrsluhæfs tölvulíkans. Í
þessum
fyrirlestri verður lýst
tölvunarfræðilegri aðferð
við að gera líkan að
fjölhátta
lotuskiptum í rauntíma. Hina fastbundnu en
þó sveigjanlegu samskipun milli fólks
sem tekur þátt í samskiptum augliti til
auglitis skýrir líkanið sem
útkomu úr víxlverkunum
milli margra markvísra hugrænna ferla.
Samkvæmt þessari nálgun eru
þau mynstur
sem fram koma við lotuskipti í gerjun og stafa af
víxlverkun ferla hjá einstökum
þátttakendum og milli þeirra.
Nálgunin byggist á og
útfærir fyrri vinnu með
YTTM – tölvulíkan af
fjölhátta lotuskiptum þar sem tekist er
á við mikinn
fjölda samræðueinkenna, þ.
á m. endurgjöf, framígrip og
nærhendisdreifingu
tals.
Dr.
Kristinn R. Þórisson er dósent
við tölvunarfræðideild
Háskólans í
Reykjavík og annar stjórnenda Gervigreindarseturs
(Center for Analysis and
Design of Intelligent Agents). Hann hefur fengist við
rannsóknir á sviði
gervigreindar í rúm 17 ár,
bæði í
háskólaumhverfi og hjá
fyrirtækjum. Í M.I.T.
var hann brautryðjandi í gerð
sýndarvitvera sem gæddar voru
fjölhátta skynjun
og aðgerðastjórn. Hjá LEGO
Digital stjórnaði hann smíði
stórs sýndarheims sem
byggður var gagnvirkum verum. Kristinn hefur verið
ráðgjafi á sviði tækni
og
viðskipta fyrir British Telecom, Kaupthing Investment Bank og
NASA, meðal
annarra, og kennt námskeið um gervigreind
hjá Columbia University og KTH. Hann
er meðstofnandi MINDMAKERS.ORG, sem eru
alþjóðleg samtök þeirra
sem vinna að þróun
á sviði gagnvirkrar gervigreindar.
Rannsóknir hans nú beinast að
gerð stórra
gervigreindarkerfa sem búa yfir hæfileikum til
skynjunar, aðgerða og rökleiðslu,
og notkun þeirra í vélmennum.
Nánari upplýsingar er að finna
á heimasíðu
Kristins (http://www.ru.is/faculty/thorisson)
og heimasíðu Gervigreindarseturs, CADIA (http://ailab.ru.is).
|