30.9.2007
Ókeypis
aðgangur að talgervlinum Röggu á
netinu
Á
Vísindavöku Rannís
föstudaginn 28. september kynnti
hugbúnaðarfyrirtækið Hexia
nýja þjónustu sem nýtir
talgervilinn Röggu. Ragga er nýr
íslenskur talgervill sem gerður var í
samvinnu Hexiu, Símans, Trackwell, Háskóla
Íslands, og
alþjóðafyrirtækisins Nuance,
og styrktur af Tungutæknisjóði.
Á vef
Hexiu
er hægt að sækja íhlut
í vafra notenda sem gerir þeim kleift að
láta Röggu lesa íslenskan texta
á hvaða vefsíðu sem er.
Þessi þjónusta er ókeypis, en
Hexia býður einnig ýmsa tengda
þjónustu gegn gjaldi.
|