3.1.2008
Fyrirlestur
um Vefþuluna 8. janúar
Þriðji
fyrirlestur Tungutækniseturs á þessum
vetri verður haldinn í stofu 201 í
Háskólanum í Reykjavík
við Ofanleiti þriðjudaginn 8.
janúar og hefst kl. 12:00. Fyrirlesturinn nefnist
"Vefþulan - Laganemar, lesblindir, léttar
fréttir, lygimál og klám" en
í honum fjallar Helga
Waage um Vefþuluna (http://www.hexia.net/upplestur),
það sem fólki hefur dottið
í hug að nota hana í, misgagnleg
notkunartilvik, þróun tölvuraddarinnar
Röggu og viðskiptahugmyndina á bak
við þetta allt saman.
Helga
Waage
útskrifaðist með BS gráðu
í tölvunarfræði frá
Háskóla Íslands
árið 1989. Hún lauk
meistaraprófi í
tölvunarfræði frá University of
Pittsburgh árið 1993. Hún er stofnandi og
annar aðaleigandi hexia.net
– en hexia.net
er hugbúnaðarhús sem hannar
hugbúnað sem miðlar efni af ýmsu
tagi milli tölva og farsíma. Hexia.net
var tilnefnt eitt af 200 framsæknustu fyrirtækjum
í heiminum af Red
Herring árið
2005. Helga var verkefnastjóri í
tungutækniverkefnunum Ragga
- gerð íslensks talgervils
og Hjal
- gerð íslensks talgreinis.
Hún hefur einnig setið í ýmsum
ráðum og stjórnum og sinnt
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
einkaaðila, opinbera aðila og
háskólastofnanir.
|