Menntamálaráðherra,
Björn
Bjarnason, skipaði
haustið 1998
vinnuhóp til að gera könnun á
hvernig mætti efla tungutækni hér
á landi. Í vinnuhópnum voru: dr. Rögnvaldur
Ólafsson
eðlisfræðingur, Eiríkur
Rögnvaldsson
málfræðingur og Þorgeir
Sigurðsson
rafmagnsverkfræðingur. Hópurinn
skilaði tillögum sínum í skýrslu
síðla vetrar, og
lagði m.a. til að stjórnvöld
gerðu átak til þess að efla
tungutækni og veittu verulegu fé til
þess.
Skýrsluna má
lesa hér
í heild.
Tungutækni:
Skýrsla starfshóps
Tungutækniverkefni
menntamálaráðuneytisins
lauk í árslok 2004. Hinn 30.
nóvember 2004
stóð verkefnisstjórn um
tungutækni fyrir
ráðstefnu í Salnum í
Kópavogi,
þar sem kynnt voru flest helstu verkefni sem
áætlunin hefur styrkt. Erindin á
ráðstefnunni voru gefin út í
bæklingi
ásamt ávarpi
menntamálaráðherra og
yfirliti Rögnvaldar
Ólafssonar
verkefnisstjóra um
tungutækniverkefnið. Bæklinginn
má lesa
hér í heild.
Samspil tungu og tækni. Afrakstur
tungutækniverkefnis
menntamálaráðuneytisins
Árið
2005 fól Málráð
Norðurlanda (Nordens
sprogråd)
þeim Kimmo Koskenniemi prófessor í
Helsinki og Torbjørn Nordgård prófessor
í Þrándheimi að semja
skýrslu, svonefnt "Vismansrapport", um
stöðu tungutækni á
Norðurlöndum og nauðsynlegar
aðgerðir til að koma
Norðurlöndum í fremstu röð
á þessu sviði á næstu
10 árum. Þessari skýrslu var
skilað vorið 2006 og hana má lesa
hér í heild.
Í
ársbyrjun 2008 gaf Tungutæknisetur út
fyrstu skýrsluna um starfsemi sína.
Skýrslan tekur til tímabilsins maí
2006 til ágúst 2007. Hana er að finna
hér: